Flýtilyklar
Volvo FH16 Aero frumsýndur á Vetrarsýningu Veltis laugardaginn 23. nóvember. Komdu!
Vetrarsýning Veltis verður haldin laugardaginn 23. nóvember milli kl. 10-14. Komdu!
Á sýningunni verður frumsýndur Volvo FH16 Aero 780 hestafla vörubíll, sá fyrsti sinnar gerðar á landinu! Til viðbótar verða Volvo EC400 og EC230 vinnuvélar á svæðinu. Komdu á frumsýningu laugardaginn 23. nóvember í Hádegismóum 8, Árbæ, Reykjavík milli kl. 10-14.
Reynsluakstur á Volvo FH16 Aero
Boðið verður uppá reynsluakstur á Volvo FH16 Aero 780 hestafla bílnum. Komdu, sjáðu og prófaðu!
Volvo FH16 Aero er háþróaður flutningabíll, hannaður til þungaflutninga með aukinni afkastagetu og sparneytni. Hann státar af loftaflfræðilegri hönnun sem ásamt öflugri D17 vél, býður upp á hámarksafköst með minni eldsneytisnotkun. Bíllinn er speglalaus en í staðin hefur verið komið fyrir myndavélum. Volvo FH16 Aero er með kraftmikla 17-lítra vél sem kemur í þremur afkastastigum: 600, 700 og 780 hestöfl, og hámarks togkraft upp að 3800 Nm, 780 hestafla vélin er sú öflugasta á markaðanum í dag.
Bíllinn er einnig útbúinn þægilegu Aero Cab Globetrotter XXL stýrishúsi sem veitir ökumanni aukið rými og meiri þægindi á löngum akstursdögum.
Volvo F-Series vinnuvélar á svæðinu
Við verðum einnig með til sýnis tvær nýjar beltagröfur úr nýju F- Series línu Volvo vinnuvéla, Volvo EC400 og Volvo EC230. Þær eru sparneytnari, öruggari og hagstæðari í rekstir en eldri vélar. Ný hönnun á stýris húsi, stærri skjár með meiri gæðum. Gangsettar án lykla, fleiri valmöguleikar í stýri búnaði, meira geymslupláss allt gert til að auka þægindi fyrir þann sem vinnur á vélinni. Þráðlaus hleðslulausn fyrir síma.
Komdu á Vetrarsýningu Veltis 23. nóvember í Velti, Hádegismóum 8, Árbæ.