Fara í efni  

MARTEINN JÓNSSON TEKUR VIÐ SEM NÝR FRAMKVÆMDASTJÓRI VELTIS – VOLVO ATVINNUTÆKJASVIÐS BRIMBORGAR

Marteinn Jónsson nýr framkvæmdarstjóri Veltis
Marteinn Jónsson nýr framkvæmdarstjóri Veltis

Marteinn Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Veltis – Volvo atvinnutækjasviðs Brimborgar. Marteinn er viðskiptafræðingur frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst og hefur lengst af starfað hjá Kaupfélagi Skagfirðinga á Sauðárkróki sem framkvæmdastjóri verslunar- og þjónustusviðs. Marteinn býr að langri reynslu í stjórnun og mikilli reynslu af rekstri öflugs þjónustuverkstæðis en undir hann heyrði véla-, bíla og rafmagnsverkstæði Kaupfélagsins á Sauðárkróki fyrir fólksbíla og önnur atvinnutæki. Marteinn er kvæntur Bertínu Guðrúnu Rodriquez, fjármálasérfræðingi hjá Reykjavíkurborg.

Veltir – Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar er eitt af sex viðskiptasviðum hjá Brimborg. Veltir er sölu- og þjónustuumboð fyrir Volvo vörubíla, Volvo vinnuvélar, Volvo rútur og Volvo Penta bátavélar ásamt Hiab hleðslukrönum fyrir vörubíla. Veltir veitir eigendum atvinnutækja heildstæða þjónustu í framúrskarandi aðstöðu á Hádegismóum 8 sem opnuð var í nóvember 2018.  Verkstæði Veltis á Hádegismóum er það fullkomnasta í greininni með góðu aðgengi frá stofnbrautum og mjög góðu athafnarými fyrir stór tæki. Hjá Velti er í boði öll þjónusta frá varahlutum og viðgerðum til Nokian dekkja og ökumælaþjónustu. Einnig býður Veltir hraðþjónustu fyrir vöru- og sendibíla og rútur undir nafninu Veltir Xpress. Í húsinu er einnig Frumherji með nýja og afar fullkomna skoðunarstöð.

„Við erum mjög ánægð með að fá Martein til að taka við og leiða Veltisteymið inn í spennandi tíma en framundan er mikill uppgangur í innviðauppbyggingu á Íslandi. Veltir mun leika þar stórt hlutverk með sterk vörumerki, reynslumikla fagmenn og einstaka aðstöðu til að veita framúrskarandi þjónustu“ segir Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar.

„Ég er mjög spenntur fyrir að hefja störf hjá Velti og sé gríðarlega möguleika með þeim framúrskarandi sérfræðingum sem þar starfa í frábærri aðstöðu á Hádegismóum með öflug vörumerki“ segir Marteinn.

  • Verkstæði, varahlutir og söludeild tækja: 510 9100
  • Netfang: veltir@veltir.is
  • Kt.: 701277-0239
  • VSK.NR.: 11650

Veltir er Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar og er til húsa í Hádegismóum 8, Árbæ. Veltir sér um þjónustu og sölu fyrir Volvo vörubíla, Volvo vinnuvélar, Volvo rútur og strætisvagnar, Volvo Penta bátavélar og Renault vörubíla.  Einnig er Veltir þjónustu- og söluaðili fyrir Hiab hleðslukrana, Wille fjölnotavélar, Zetterbergs ábyggingar, Reisch tengivagna, Joab ábyggingar, Tyllis ábyggingar, Mahlers mokstursbúnað, Skab vörukassa, Steelwrist rótortilt, Holms sópa og snjótennur og Dieci skotbómulyftara. Vörubíla og rútuverkstæði Veltis og vélaverkstæðis Veltis sér um þjónustu við Volvo atvinnutæki, Renault vörubíla og Hiab hleðslukrana. Vörubílar, sendibílar, rútur, vagnar fá olíuþjónustu og smur, dekk og dekkjaþjónustu, bremsur og bremsuþjónustu, vagnaþjónustu, WABCO vagna varahluti, kælikerfisþjónustu, hjólastillingu og LED vinnuljós á bíla og vélar hjá Veltir Xpress verkstæði á Hádegismóum 8 í Árbæ.  Veltir Xpress annast einnig ísetningar, prófanir, skoðanir og innsiglingu á ökuritum og stillingar hraðatakmarkara. 

© Höfundarréttur Veltir  |  PersónuverndSkilmálar  |  Veftré

Vefspjall