Fara í efni  

Volvo vinnuvélaverkstæði

Volvo vinnuvélaverkstæði

Við sérhæfum okkur í viðhaldi og viðgerðum á Volvo vinnuvélum. Við leggjum áherslu á faglega og skilvirka þjónustu til að tryggja að tækin þín séu ávallt í toppstandi. 

Við getum komið til þín eða þú á verkstæði okkar. Við erum með öflugan flota þjónustubíla sem fara reglulega um landið eða skjótast til þín.

Þjónusta okkar felur í sér:

  • Véla- og vökvakerfisviðgerðir: Viðgerðir og viðhald á vélum og vökvakerfum til að tryggja hámarksafköst og endingu.

  • Rafkerfisviðgerðir: Greining og viðgerðir á rafkerfum til að tryggja áreiðanleika og öryggi.

  • Undirvagnsviðgerðir: Viðhald og viðgerðir á undirvagni til að tryggja stöðugleika og öryggi í erfiðum aðstæðum.

  • Smur- og síuþjónusta: Reglulegt smur og skipti á síum til að viðhalda réttri virkni og lengja líftíma vélarinnar.

  • Dekkjaþjónusta: Uppsetning, jafnvægisstilling og viðgerðir á dekkjum fyrir allar gerðir vinnuvéla.

Við notum eingöngu upprunalega varahluti frá Volvo í þína vinnuvél til að tryggja gæði, endingu og ábyrgð. Sérfræðingar okkar eru reiðubúnir að veita ráðgjöf og finna bestu lausnirnar fyrir þínar þarfir.

Hringdu, komdu eða bókaðu tíma á netinu hjá Velti verkstæðum

Sveigjanleiki. Þú getur hringt í 5109100, rennt við hjá okkur eða pantað tíma á netinu á verkstæðum Veltis. Þú færð staðfestingu í SMS-i og við minnum þig á tímann.

Bókaðu tíma núna! Viltu senda fyrirspurn smelltu þá hér. Við svörum um hæl.

BÓKA TÍMA

AFBÓKA

Við erum staðsett á Hádegismóum 8 í Árbæ með framúrskarandi aðstöðu og aðgengi fyrir allar stærðir vinnuvéla. Öll verkstæði okkar eru aðilar að Bílgreinasambandinu (BGS), sem tryggir há gæðaviðmið í allri okkar þjónustu.

BGS

Komdu með Volvo vinnuvélina þína til okkar og við sjáum til þess að hún fái þá umönnun sem hún á skilið.

  • Verkstæði, varahlutir og söludeild tækja: 5109100
  • Netfang: veltir@veltir.is
  • Kt.: 701277-0239
  • VSK.NR.: 11650

Veltir er Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar og er til húsa í Hádegismóum 8, Árbæ. Veltir sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vörubílum, rútum (hópferðabílum), vinnuvélum, skotbómulyfturum, hleðslukrönum fyrir vörubíla, eftirvögnum og bátavélum. Veltir býður einnig upp á viðgerðir, varahluti, aukahluti, dekk, dekkjaþjónustu og margvíslegan ábyggingarbúnað fyrir fyrrgreind tæki. Veltir er þjónustu- og söluaðili fyrir Volvo vörubíla, Volvo vinnuvélar, Volvo rútur og strætisvagnar, Volvo Penta bátavélar og Renault vörubíla.  Einnig er Veltir þjónustu- og söluaðili fyrir Hiab hleðslukrana, Wille fjölnotavélar, Zetterbergs ábyggingar, Reisch tengivagna, Joab ábyggingar, Tyllis ábyggingar, Mahlers mokstursbúnað, Skab vörukassa, Steelwrist rótortilt, Holms sópa og snjótennur og Dieci skotbómulyftara. Vörubíla og rútuverkstæði Veltis og vélaverkstæði Veltis sér um þjónustu við fyrrgreinda bíla og tæki. Vörubílar, sendibílar, rútur, vagnar fá olíuþjónustu og smur, dekk og dekkjaþjónustu, bremsur og bremsuþjónustu, vagnaþjónustu, WABCO vagna varahluti, kælikerfisþjónustu, hjólastillingu og LED vinnuljós á bíla og vélar hjá Veltir Xpress verkstæði á Hádegismóum 8 í Árbæ.  Veltir Xpress annast einnig ísetningar, prófanir, skoðanir og innsiglingu á ökuritum og stillingar hraðatakmarkara ásamt því að bjóða upp á hjólastillingar fyrir stóra atvinnubíla.

 

 

© Höfundarréttur Veltir  |  PersónuverndSkilmálar  |  Veftré

Vefspjall