Flýtilyklar
Volvo vörubílaverkstæði
Volvo vörubílaverkstæði
Við sérhæfum okkur í viðgerðum og viðhaldi á Volvo vörubílum. Markmið okkar er að tryggja að atvinnutækið þitt sé í toppstandi með framúrskarandi þjónustu á öllum sviðum.
Við getum komið til þín eða þú á verkstæði okkar. Við erum með öflugan flota þjónustubíla sem fara reglulega um landið eða skjótast til þín.
Þjónusta okkar felur í sér:
-
Olíuþjónusta og smur: Reglulegt smur og olíuskipti til að viðhalda hámarksafköstum og endingu vélarinnar.
-
Dekk og dekkjaþjónusta: Við bjóðum upp á breitt úrval af dekkjum og faglega dekkjaþjónustu fyrir allar gerðir vörubíla.
-
Bremsur og bremsuþjónusta: Öryggi er í fyrirrúmi; við sjáum um viðhald og viðgerðir á bremsukerfum til að tryggja áreiðanleika.
-
Vagnaþjónusta: Sérhæfð þjónusta fyrir eftirvagna, þar á meðal viðgerðir og viðhald.
-
Kælikerfisþjónusta (AC kerfi): Viðhald og viðgerðir á loftkælingarkerfum til að tryggja þægindi ökumanns.
-
Hjólastilling: Nákvæmar hjólastillingar til að bæta aksturseiginleika og draga úr slit á dekkjum.
-
LED vinnuljós: Uppsetning og viðhald á LED vinnuljósum fyrir betri lýsingu og öryggi.
Við notum eingöngu upprunalega varahluti frá framleiðanda til að tryggja gæði, endingu og ábyrgð. Sérfræðingar okkar eru reiðubúnir að veita ráðgjöf og finna réttu lausnina fyrir þig.
Hringdu, komdu eða bókaðu tíma á netinu hjá Velti verkstæðum
Sveigjanleiki. Þú getur hringt í 5109100, rennt við hjá okkur eða pantað tíma á netinu á verkstæðum Veltis. Þú færð staðfestingu í SMS-i og við minnum þig á tímann.
Bókaðu tíma núna! Viltu senda fyrirspurn smelltu þá hér. Við svörum um hæl.
Við erum staðsett á Hádegismóum 8 í Árbæ með framúrskarandi aðstöðu og aðgengi fyrir allar stærðir atvinnubíla og vagna. Öll verkstæði okkar eru aðilar að Bílgreinasambandinu (BGS), sem tryggir há gæðaviðmið í allri okkar þjónustu.
Komdu með Volvo vörubílinn þinn til okkar og við sjáum til þess að hann fái þá umönnun sem hann á skilið.